Kemur blogg eftir langa bið, haha

Þá er best að sína smá lit hérna og skrifa eitthvað að viti. Það er allt gott að frétta hér hjá okkur. Ég og strákarnir fórum til Hornafjarðar og vorum í góða viku og höfðum það gott, ég ætlaði að vera svo duglega að læra en það fór eitthvað minna fyrir því en gerði aðeins.

Eins og þið munið að þá fótbrotnaði Baldur Freyr og losnaði við gifsið í byrjun janúar og var ekki alveg að geta labbað eða hann haldraði, þannig að hann fór í sjúkraþjálfun og er búinn að vera í henni og hefur gengið vel. Hann er farin að beita fætinum rétt og er farinn að hlaupa, og hefur verið 2-3 í viku en nú er búið að minnka tímann.

Frétta af Elmari Bjarna að hann stóð upp í rúminu sínu í morgunn þannig að þá er ekki langt þangað til að hann fari að standa upp allstaðar. Svo er hann mikið að fara uppá fjórar fætur og er að reyna að fatta hvað á að gera þannig að hann er alveg að fara að skríða en hann hefur nú farið um á maganum og dregur sig áfram á höndunum. Hann er búin að fá tvisvar í eyrun á stuttum tíma og er ég að vona að hann er búinn að ná þessu úr sér og fái ekki stax aftur í eyrun, en þegar hann fékk fyrsta skiptið þá sprakk hljóðhimnan.

Frá skólamálum mínum er allt gott að frétta ég náði öllum prófunum nema einu, ég var veik í fyrsta prófinu fékk lungnabólgu og fór í sjúkra- og endurtökupróf og féll. Þannig að ég tek það í ágúst.

Svo er ég búin að fá vinnu í sumar og verð ég í heimahjúkrun og vinn sem sjúkraliði og fæ að vinna líka sem hjúkrunafræðingur, þannig að þetta verður gaman. 

Jæja ekki meira í bili bless Smile


24. desember 2008

Gleðileg Jól og

farsælt komandi nýtt ár

 

til ykkar allra sem les þetta blogg. Cool

Jólakveðja frá mér og mínum Grin


25. nóv.....

Þá er að skrifa eitthvað hér inn aðeins, það er svo sem eitthvað að frétta héðan. Það styttist í prófin og ekki er það gaman tekur við stress og verður móðurinn á heimilinu ekki sú skemmtilegasta, hún verður uppfull af stressi. Annars er það að frétta að stóri strákurinn minn Baldur Freyr að hann fótbrotnaði í sunnudagskvöldið 23.nóv og greyið er í gifsi frá tám og uppí nára, hann brotnaði á vinstri fæti og rétt fyrir ofna ökkla. Hann var svo duglegur þegar við vorum uppá slysó. Þannig að hann verður heima næstu 2 vikur og þá vonandi kemst í göngugifs en sé til hvort hann fari í leiksskólann þá kannski í smá tíma en það fer allt eftir því hvernig hann verður greyið. Elmar Bjarni er flottur og rosaduglegur, hann verður bráðum farinn á ferðina áður en ég veit af.

heyrist aftur seinna í mér fljótlega.........Cool


24.okt..........

kemur eitthvað frá mér, sit hér heima og heyri í vindinum af og til, það er sem sagt fullt af snjó og snjóar enn, kallinn er einhver staðar í útkalli sem honum finnst nú ekki leiðinnlegt að gera vera úti að brasa í svona veðri. Nú er ég búin að vera heima í októmber og mætt lítið í skólann hef bara mætt í þá tíma sem er skilda að mæta í, því að Jóhann er farinn að vinna aftur. Þetta púslast einhvern veginn hjá mér og læt það virka þá það sé þannig að ég get ekki sest niður og verið að læra í marga tíma því að Elmar Bjarni finnur alltaf á sér að ég er að reyna gera eitthvað að viti og verður eirðlaus og vill heldst vera í fanginu á mér gengur svona upp og niður að hafa hann í fanginu.  Svo hef ég verið upp á síðakastið eitthvað svo orkulaus að ég kem ekki miklu í verk og nenni ekki neinu en samt eitthvern veginn gerir maður eitthvað og slukkast áfram. Hann Baldur Freyr er alsæll á leiksskólanum þau fara alltaf í vettfangsferð þá er farið út fyrir leiksskólann og skoðað, til dæmis má nefna að þau fóru eitt sinn að skoða andarnefjurnar sem voru á pollinum og mínum manni fannst það gaman nema það að hann sá bara bakið á þeim því þær voru ekki að stökkva neitt, hann villti sjá þær stökkva og sjá þær betur. Svo er líka stutt í þennan leiksskóla að ég fer mjög oft labbandi að sækja hann sem er bara gott fyrir mig að hreyfa mig eitthvað. Hann Elmar Bjarni er alveg yndislegur hann sofnar á kvöldinn og yfirleitt vaknar ekki fyrr en undir morgunn, ekki getur maður kvartað yfir því en hann sefur yfirleitt í svo hálf tíma.

jæja þetta verður ekki lengra í bili kveð í bili.

Dísa skvísa  Cool


Fullt af afmælum. :)

Nú hefur runnið merkur dagur upp en það er það að ég á afmæli Tounge ég á afmæli LoL. Jæja hvað með það hinsvegar hefðu tvær merkilegar manneskur átt stór afmæli nú í september, en það væri hún amma (pabba megin) hefði orðið 100 ára þann 11. september, og svo hann afi (mömmu megin) hefði orðið 80 ára í gær 15. september. Vegna þess að amma hefði orðið 100 ára þá ákvað pabbi að halda upp á það og að smala öllum afkomendum hennar saman. En allavega þá fórum við suður í veisluna og var mjög gaman að fara að hitta alla þar. Svo var mamma einnig fyrir sunnan þannig að við hittum hana aðeins og einnig fórum við uppí kirkjugarð þar sem afi og nafna mín hún amma liggja. Svo eiga fleiri afmæli í þessum mánuði og til hamingju með það þið sem eigið afmæli.

Kveðja frá afmælisbarninu.  Cool

Já og annað ég ætla að hætta að hafa síðuna læsta í bili.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband